- Almennt verð
- 20 kr
- Tilboð
- 20 kr
- Almennt verð
- 20 kr
- Einingaverð
- á
Upplýsingar
Símaveski – Hæðarbyggð 26 – 210 Garðabær – sala@simaveski.is – kt. 600820-2300 – Vsknr. 158870
Símaveski er lén og vörumerki í eigu og á vegum Lumon ehf. (hér eftir kallað seljandi). Seljandi áskilur sér rétt til að hætta við og kalla til baka sölu eða pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga á heimasíðu, ef hætt hefur verið að bjóða upp á vörutegund án fyrirvara eða af öðrum ótöldum ástæðum. Seljandi áskilur sér rétt til að staðfesta pantanir símleiðis.
Öll verð í vefverslun eru gefin upp í íslenskum krónum (ISK) með virðisaukaskatti (VSK).
Sendingarkostnaður er mismunandi eftir sendingarmöguleikum og reiknast sjálfkrafa í körfunni við greiðslu. Sendingargjöld og -möguleikar eru tengd þjónustu Íslandspósts og taka breytingum eftir póstnúmerum, þjónustustigi og gjaldskrá Íslandspósts hverju sinni.
Pantanir sem gerðar eru fyrir hádegi eru að jafnaði afgreiddar samdægurs, en pantanir sem berast síðar að jafnaði næsta virka dag. Samkvæmt skilmálum Íslandspósts dreifast sendingar að jafnaði innan þriggja virkra daga frá póstlagningu — því geta liðið allt að fjórir virkir dagar frá pöntun að afhendingu. Símaveski er staðsett í Garðabæ, sem getur haft áhrif á afhendingartíma m.a. vegna veðurs, færðar og árstíðar.
Um sendingar gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts. Símaveski ber því ekki ábyrgð á töfum, týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi eftir að hún hefur verið afhent dreifingaraðila. Þegar greitt er sérstaklega fyrir rekjanlega sendingu er hún á ábyrgð dreifingaraðila; týnist pakki eða skemmist í meðförum Íslandspósts getur sendandi (í umboði kaupanda) krafist skaðabóta allt að 22.500 kr. Íslandspóstur tekur ekki ábyrgð á óbeinu tjóni vegna seinkunar. Eins og er sendum við einungis innan Íslands.
Veittur er 14 daga skipta- eða skilaréttur við kaup á vöru gegn framvísun á sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu og óskemmdu umbúðum. Þessi skilaréttur á ekki við um tilboðs-, útsölu- eða sérpöntunarvöru.
Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar. Seljandi áskilur sér rétt til að gefa út inneignarnótu í stað endurgreiðslu. Kaupandi ber sjálfur kostnað af flutnings- og póstburðargjöldum við endursendingu vöru til seljanda. Endursendi kaupandi skilavöru á kostnað seljanda áskilur seljandi sér rétt til að draga sendingarkostnað frá endurgreiðslu. Hafðu samband á sala@simaveski.is áður en þú sendir vöru til baka.
Sé vara gölluð er viðskiptavini boðin ný vara í stað hinnar gölluðu. Kaupandi þarf að geta sýnt fram á gallann, annað hvort með mynd eða með því að endursenda vöruna; seljandi greiðir flutningskostnað í þeim tilvikum. Kaupandi getur einnig krafist endurgreiðslu vegna gallaðrar vöru, en seljandi áskilur sér rétt til að fá vöruna endursenda áður en endurgreiðsla fer fram.
Að öðru leyti vísast til laga nr. 48/2003 um neytendakaup (kaup einstaklinga) og laga nr. 50/2000 um lausafjárkaup (kaup lögaðila), þar sem ákvæðum þessara skilmála sleppir.
Í samræmi við 42. gr. laga nr. 75/1997 áskilur seljandi sér eignarrétt á seldri vöru þar til kaupverð hefur verið að fullu greitt, og áskilur sér rétt til að taka hið selda til baka með vísan til 4. til 38. gr. sömu laga.
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Vefsíðan notar vafrakökur til að tryggja sem besta upplifun og í markaðslegum tilgangi. Nánari upplýsingar er að finna í persónuverndarstefnu okkar.
Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Spurningar? sala@simaveski.is · 517-0150