- Almennt verð
- 20 kr
- Tilboð
- 20 kr
- Almennt verð
- 20 kr
- Einingaverð
- á
Veittur er 14 daga skipta- eða skilaréttur við kaup á vöru gegn framvísun á sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu og óskemmdu umbúðum. Þessi skilaréttur á ekki við um tilboðs-, útsölu- eða sérpöntunarvöru.
Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar. Seljandi áskilur sér rétt til að gefa út inneignarnótu í stað endurgreiðslu. Kaupandi ber sjálfur kostnað af flutnings- og póstburðargjöldum við endursendingu vöru til seljanda. Endursendi kaupandi skilavöru á kostnað seljanda áskilur seljandi sér rétt til að draga sendingarkostnað frá endurgreiðslu.
Sé vara gölluð er viðskiptavini boðin ný vara í stað hinnar gölluðu. Kaupandi þarf að geta sýnt fram á gallann, annað hvort með mynd eða með því að endursenda vöruna; seljandi greiðir flutningskostnað í þeim tilvikum. Kaupandi getur einnig krafist endurgreiðslu vegna gallaðrar vöru, en seljandi áskilur sér rétt til að fá vöruna endursenda áður en endurgreiðsla fer fram.
Að öðru leyti vísast til laga nr. 48/2003 um neytendakaup (kaup einstaklinga) og laga nr. 50/2000 um lausafjárkaup (kaup lögaðila), þar sem ákvæðum þessara skilmála sleppir.
Hafðu samband á sala@simaveski.is áður en þú sendir vöru til baka.