Shipping policy

Verð á sendingu

Sendingarkostnaður er mismunandi eftir sendingarmöguleikum og reiknast sjálfkrafa í körfunni við greiðslu. Sendingargjöld og -möguleikar eru tengd þjónustu Íslandspósts og taka breytingum eftir póstnúmerum, þjónustustigi og gjaldskrá Íslandspósts hverju sinni.

Afhending vöru

Pantanir sem gerðar eru fyrir hádegi eru að jafnaði afgreiddar samdægurs, en pantanir sem berast síðar að jafnaði næsta virka dag. Samkvæmt skilmálum Íslandspósts dreifast sendingar að jafnaði innan þriggja virkra daga frá póstlagningu — því geta liðið allt að fjórir virkir dagar frá pöntun að afhendingu.

Afhendingartími getur ráðist af völdum sendingarmöguleika og þjónustustigi á móttökustað. Símaveski er staðsett í Garðabæ, sem getur haft áhrif á afhendingartíma m.a. vegna veðurs, færðar og árstíðar.

Ábyrgð á flutningi

Um sendingar gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts. Símaveski ber því ekki ábyrgð á töfum, týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi eftir að hún hefur verið afhent dreifingaraðila. Þegar greitt er sérstaklega fyrir rekjanlega sendingu er hún á ábyrgð dreifingaraðila; týnist pakki eða skemmist í meðförum Íslandspósts getur sendandi (í umboði kaupanda) krafist skaðabóta allt að 22.500 kr. Íslandspóstur tekur ekki ábyrgð á óbeinu tjóni vegna seinkunar.

Sendingar erlendis

Eins og er sendum við einungis innan Íslands.